top of page

Stjórn Frímanns

Picture1.jpg

Stjórn Frímanns 2023

 

Formaður

Baldvin Magnússon Mímir 

baldvin@huseign.is S: 8981177

 

Varaformaður

Ari Þórðarsson Mímir   

ari@hreint.is S: 8221888

​

Mótstjóri

Páll Arnar Erlingsson Lilja

pall@lysi.is  S: 6958119

​

Ritari 

Þorkell Ágústsson Lilja

tf-ftp@simnet.is S: 6600333

​

Gjaldkeri

Hrafnkell Tuliníus Mímir

htul@nautic.is S: 6600501

​

Varamenn

Andrés Andrésson Hamar

a.andresson@gmail.com S: 6603007

​

Asmundur R. Richardsson Gimli

asir@simnet.is S: 8922500

​

Ellert Þór Magnason Glitnir

ellert@alnabaer.is S: 8225999

Aðalfundur FGF er haldinn í br. stofu
ár hvert og samkvæmt lögum skal hann haldinn í mars

Golfing

Aðalfundur Frímanns 2024 verður haldinn í Bræðrastofu miðvikudaginn 13. mars 2024 kl. 17:00 - 19:00.

 

Aðalfundur Frímanns 2023 var haldin í Bræðrastofu þann 10. mars síðastliðin.

Hér fyrir neðan má finna fundargerð aðalfundar ásamt ársreikningum og fjárhagsáætlun.

​

Aðeins meira um sögu klúbbsins

Þann 14. nóvember 2001 stofnuðu 62 bræður og systur golfklúbbinn Frímann. Undir­bún­ing­nefnd að stofnun klúbbsins var skipuð þeim Hannesi Guðmundssyni úr Gimli, Guðmundi S. Guðmundssyni úr Mími og Hauki Björnssyni úr Mími. Það var einmitt sá síðast­nefndi sem lagði til að nafn klúbbsins yrð: Frímann – Golfklúbbur Frímúrara skams­tafað FGF.

​

Á stofn­fundinum voru hugmyndir háleitar eins og vænta mátti varðandi starfsemi klúbbsins og náðu sumar miklum hæðum. Meðal annars var rætt um kaup á landi undir golfvöll. Bróðir okkar úr Gimli og raunsæ­is­maður mikill, Hannes Guðmundsson f.v. forseti Golfsam­bands Íslands, sté í pontu og fór yfir þá umræðu sem hafði farið fram á fundinum og dró fundarmenn aftur niður á jörðina.

 

Hannes benti mönnum á að það eitt að byggja upp golfvöll kostaði mikla peninga, hundruð milljóna króna, og taldi Hannes betra að stíga fyrstu skrefin varlega til jarðar í þessum efnum og hefja þess í stað viðræður við minni starfandi golfklúbba og aðstoða þá og efla til frekari uppbygg­ingar sinna valla. Það varð síðan úr að fjótlega veturinn 2001-2002 hófst samstarf við golfklúbb Bakkakots. Það samstarf stóð í nokkur ár en lauk endanleg er Bakkakot var sameinað Kili í Golfklúbb Mosfells­bæjar.

​

Fyrsta stjórn Frímanns var skipuð þeim Guðmundi S. Guðmundssyni Mími sem var formaður, Antoni Bjarnasyni Glitni, Leópold Sveinssyni Fjölni, Birni Karlssyni Hamri, Ágústi Ragnarssyni Mími, Paul Bjarne Hansen Gimli, Hannesi Guðmundssyni Gimli, Hauki Björnssyni Mími og Einari Einarssyni Eddu.

​

Tilgangur og markmið Frímanns er að glæða og viðhalda áhuga frímúrara og fjölskyldna þeirra á golfí­þróttinni. Félagið stendur fyrir golfmótum og annarri félags­starfsemi sem tengist íþróttinni. Félagsmenn eru vel á fjórða hundraðið. Innan Frímanns eru kylfingar af báðum kynjum, á öllum aldri, allt frá byrjendum til meist­ara­flokks­manna og eru þeir búsettir víða um landið. Flestir félag­arnir í Frímanni eru auk þess félagar í hinum ýmsu golfklúbbum.

​

Frímann hefur staðið fyrir alls kyns félags­starfsemi s.s. golfmótum, golfnám­skeiðum, reglu­nám­skeiðum o.fl. Klúbburinn hefur gert vinavalla­samninga við nokkra frábæra golfvelli og njóta félagsmenn sérkjara á þeim völlum.

Vertu velkomin í Golfklúbb Frímúrara

Til þess að gerast meðlimur í klúbbnum þarftu að vera Frímúrari og að sjálfsögðu stunda golf (já eða maki þinn eða börn).

  • Facebook
  • Instagram
bottom of page