top of page

Vetrardagskrá FGF
(úrslit úr hermamóti síðasta veturs neðst á þessari síðu)

Áætlað er að vetrardagskrá hefjist í Nóvember ár hvert.  Einhver reynsla er nú komin á tilraunir FGF í vetrarstarfi og er það enn í mótun. Ljóst er þó að áhugi félagsmanna er fyrir hendi.

Stjórn FGF mun senda frá sér upplýsingar um fyrirhugað starf í vetur en að sjálfsögður eru góðar ábendingar vel þegnar. 

Möguleikar til þess að koma þeim á framfæri er á facebook síðunni okkar, Messenger eða með tölvupósti á formadur@fgf.is 

Sphere on Spiral Stairs
Winter Views

Golfhermar Golfhöllin Granda

FGF hefur gert samninga við Golföllina Granda veturinn 2025/2026 og geftst félögum FGF kostur á að leika þar á eftirfarandi verði:

Uppfært, febrúar 2026

​​60 mín virkir d. frá 10-16 = 2.825 kr.

60 mín virkir d. frá 16-23 = 4.100 kr.

60 mín helgar frá 10-19 = 4.100 kr.

​

Þess ber að geta að ofangreind verðskrá hækkaði um kr. 1.000 í febrúar 2026 vegna þess að notkunin var umtalsvert meiri en búist var við og niðurgreiðsla því lækkuð um kr. 1.000.​​

​

Til þess að bóka tíma eru eftirfarandi möguleikar:

​

 

Heimilisfang: 

Fiskislóð 53-59, 101 Reykjavík.​​​

Snowy Trees

Golfhermar Sweet Spot

FGF hefur samið við Sweet Spot fyrir veturinn 2025/2026 þannig að félagar í FGF greiða kr. 3.600 pr. klst. á Prime tíma (kvöld og helgar). 

Utan þess tíma greiða félagar kr. 2.200 pr. klst. eða kr. 1.000 pr. 30 mín.

 

​Félagar skrá sig beint á ​Sweetspot.is

​

Heimilisfang

​Miðhraun 24, 210 Garðabæ

Snow

Hermamót í Golfhöllinni á Granda

FGF hefur samið við Golfhöllina á Granda um uppsetningu á Trackman mótaröð í vetur.

Ekki eru teknir frá sérstakir tímar líkt og síðasta vetur en félagar hafa eina viku til þess að taka þátt í hverju móti fyrir sig.  Nánari upplysingar um fjölda hringja, golfvelli, dagsetningar, stöðu ofl. má sjá í Trackman appinu eða í afgreiðslu hjá Golfhöllinni.

​

Miðað er við að mótaröðin hefjist í nóvember ár hvert og ljúki í mars.

​​

Sjö bestu mót gilda til sigurs 

​

​Skilyrði fyrir þáttöku er að vera í Trackman appinu og með Trackman forgjöf. 

​

Vegleg verðlaun fyrir 1-3 sæti.

​

Félagar FGF þurfa sjálfir að skrá sig í Tracman mótaröðina gegnum Trackman app og panta tíma með því aðhafa samband við Golfhöllina.   ​

Sérstakt Trackman mót í mars 2026

Sérstkt Trackman mót var 21. mars 2026. Sjá nánar hér. 

​

Golf Balls

Úrslit í Golfhermamóti veturinn 2024-2025

Úrslit í Hermamóti Frímanns 24/25.

Flest stig úr 5 mótum telja til sigurs.

Efstu 10 í mótinu voru eftirfarandi.

 

1 sæti   Ásmundur Richard 393

2 sæti   Gísli Vagn 380

3 sæti   Margrét Ósk 353

4 sæti   Guðmundur R Magnús 302

5 sæti   Arnar Svans 270

6. sæti   Baldvin Ómar Magnúss 242

8. sæti   Bryndís Garðarsdóttir 209

9. sæti   Kristján Daníel 206

10 sæti  Þorkell Ágústsson 193

 

Verðlaun verða send til þeirra er eru í 1-3 sæti.

Um er að ræða gjafabréf frá Grillmarkaðinum.

  • Facebook
  • Instagram

© 2023 Frímann Golfklúbbur Frímúrara kt. 550102-3310 Banki 0546 26 005501

bottom of page