Sumarmót á vegum FGF

1
Bræðramót
Hella 6. júní 2026
Bræðramótið var að venju haldið á Hellu með hefðbundnu sniði. Mótið hefst þann 6. júní kl. 11:00 og verður ræst út frá öllum teigum samtímis.
Skráning í mótið hefst þann
5. maí 2026, kl. 12:00.
Skráning fer fram á Golf.is
Á hnappnum hér að neðan má sjá nánari upplýsingar um mótið í fyrra.
Yfirleitt fyllist ávallt fljótt í þetta mót svo við hvetjum brr. að vera viðbúna varðandi skráningu.
2
Landsmót
Akranes 18. júlí 2026
Landsmótið 2026 verður haldið á Akranesi 18 júlí 2026.
Skráning í mótið opnar:
18. júní 2026 kl. 12:00.
Skráning fer fram á Golf.is
Á hnappnum hér að neðan má sjá nánari upplýsingar um mótið í fyrra ásamt úrslitum.
3
Meistaramót
Meistaramót Frímanns hefur verið haldið á erlendri grundu undanfarin ár og hefur stjórn Frímanns haft það reglulega til skoðunar hvort einhver breyting eigi að vera á því. Ferðirnar hafa tekist vel og því ekki þótt ástæða til breytinga.
Í ár eru tímamót þar sem Frímann er 25 ára á þessu ári.
Stefnt er að Spánarferð 10-17 nóvember 2026 og verður því haldið upp á afmælið þar.
